Íbúafundur Fjársjóðs fjalla & fjarða
06.10.2026
Fréttir
Árlegur íbúafundur Fjársjóðs fjalla og fjarða, verður haldinn miðvikudaginn 14. október 2026 kl. 17:00 - 19:30, í bókasafni grunnskólans.
Reykhólahreppur tekur þátt í verkefninu Brothættar byggðir með áherslu á samfélagslega þróun og jákvæða framtíðarsýn í gegnum verkefnið Fjársjóður fjalla og fjarða.
Á fundinum verður:
- Kynning á verkefninu og því sem fram undan er
- Rætt um verkefnisáætlun
- Íbúar fá tækifæri til að koma sjónarmiðum sínum, hugmyndum og óskum á framfæri
- Rætt um hvernig við getum saman styrkt og þróað samfélagið okkar
Veitingar í boði.
Við viljum heyra frá íbúum – hugmyndir þínar skipta máli.
Við hvetjum alla til að mæta, taka þátt í samtalinu og eiga saman góða stund um framtíð Reykhólahrepps.