Starfsmaður í áhaldahús Reykhólahrepps
10.11.2026
Fréttir
Reykhólahreppur óskar eftir að ráða öflugan einstakling í teymi áhaldahúss. Leitað er eftir einstaklingi sem býr yfir drifkrafti, samskiptafærni, með gott verkvit og er sjálfstæður í vinnubrögðum. Starfið er mjög fjölbreytt og viðkomandi verður hluti af viðhaldsteymi sem sinnir fasteignum og innviðum sveitarfélagsins og öðrum tilfallandi verkefnum. Starfið heyrir undir framkvæmdasvið og næsti yfirmaður er umsjónarmaður fasteigna. Um er að ræða 100% starf.
Nánar á laus störf