Fara í efni

Tilkynning um endurskoðun skólastefnu

13.11.2026
Fréttir

Mennta- og menningarmálanefnd hefur skipað stýrihóp til að endurskoða skólastefnu Reykhólahrepps frá árinu 2018. Stýrihópinn skipa: Hrefna Jónsdóttir, Íris Ósk Sigþórsdóttir, Matthías Óli Gústafsson, Ólafía Sigurvinsdóttir, Vilberg Þráinsson. Ráðgjafi í Ásgarði skólaráðgjöf annast verkstjórn í samvinnu við stýrihóp og starfsfólk sveitarfélagsins.

 

Stýrihópurinn ber ábyrgð á vinnu við endurskoðun skólastefnu Reykhólahrepps og gerð nýrrar stefnu með það að markmiði að ná breiðri samstöðu um stefnumótunina og skýra framtíðarsýn í mennta- og uppeldismálum sveitarfélagsins.

 

Helstu verkefni stýrihóps:

  • Greining og mat á framgangi skólastefnu frá 2018.
  • Mótun stefnu, gilda, framtíðarsýnar og meginmarkmiða.
  • Aðgerðir til innleiðingar með mælikvörðum fyrir eftirfylgni.
  • Víðtækt samráð við stjórnendur, starfsfólk, nemendur, foreldra, kjörna fulltrúa, aðra hagsmunaaðila og íbúa um mótun stefnunnar.

 

Fólk er hvatt til að leggja sitt af mörkum við endurskoðunina meðal annars með því að taka þátt í könnunum sem verða lagðar fyrir og á íbúafundi sem er áætlaður í janúar. Áætlað er að ný stefna verði tilbúin vorið 2027.

 

Með von um gott samstarf og góða þátttöku.

Stýrihópur um endurskoðun skólastefnu Reykhólahrepps