Fara í efni

Lífland - vörur heim í hlað

10.11.2026
Fréttir

Góðan dag kæru viðskiptavinir

Þá er komið að ferð hjá okkur í Dalina.

Áætlað er að bílar fari frá Reykjavík mánudaginn 16. nóvember.

Vinsamlegast verið búin að skila inn pöntun fyrir kl.16. fimmtudaginn 12. nóvember.

Hér getið þið séð ýmislegt sem ykkur gæti vantað.

Tilboð

10% afsláttur af Ærblöndu ef verslað er bretti eða stórsekkur Ærblanda Líf eða Ærblanda háprótein kjarnfóður er nú á 10% afslætti ef pantað er

eitt bretti (24 smásekkir) eða einn stórsekkur eða meira.

 

Fóðrað til fangs

Góður undirbúningur fyrir fengitímann hefst með réttri fóðrun. Næg orka, prótein, vítamín og steinefni skipta máli fyrir holdafar, heilbrigði og frjósemi fjárins.

Hjá Líflandi finnur þú kjarngóðar ærblöndur og fjölbreytt bætiefni sem hjálpa þér að undirbúa féð fyrir fengitímann.

Kjarngóðar ærblöndur fyrir íslenskt sauðfé

Ærblöndurnar frá Líflandi eru samsettar með næringarþarfir íslensks sauðfjár að leiðarljósi.

 

Ærblanda háprótein – fyrir öflugt fengieldi

Próteinrík kjarnfóðurblanda með fiskimjöli sem hentar vel þar sem þörf er á öflugri viðbótarfóðrun fyrir fengitímann.

Skoða Ærblöndu háprótein

 

Ærblanda LÍF – hagkvæmur kostur

Kjarnfóðurblanda sem veitir viðbótarorku og prótein og hentar vel með góðu gróffóðri.

Skoða Ærblöndu LÍF

Báðar blöndurnar fást í 25 kg og 500 kg sekkjum.

 

Sérstök fengieldistilboð!

Nýttu þér hagstæð tilboð á völdum bætiefnum og búðu féð vel undir veturinn.

  • NÝ VARA! Sauðfjárfata LÍF – 20% kynningarafsláttur
    Lystug, melassabætt steinefna- og vítamínfata, sérstaklega rík af seleni, sinki og öðrum mikilvægum snefilefnum. Hentar vel í kringum fengitímann. Varan lendir hjá okkur um miðjan nóvember.
    Skoða Sauðfjárfötu LÍF

 

  • Sauðfjárfata – 15% afsláttur
    Steinefna- og vítamínfata sérstaklega ætluð sauðfé. Rík af fosfór, magnesíum og E-vítamíni.
    Skoða Sauðfjárfötu

 

  • FW steinefnasteinn – 15% afsláttur
    Steinefna- og selenbættur saltsteinn. Koparsnauður og hentar því vel sauðfé.
    Skoða FW steinefnastein

 

  • Alhliðasteinn – 15% afsláttur
    Náttúrulegur saltsteinn án aukaefna sem hentar öllum búfénaði.
    Skoða Alhliðastein

 

  • Super Booster – 20% afsláttur
    Fljótandi sérfóður fyrir sauðfé sem styður við heilbrigði og frjósemi áa og hrúta í aðdraganda tilhleypinga.
    Skoða Super Booster

 

  • LiqVita ADE 60 – 15% afsláttur
    Fljótandi A-, D- og E-vítamín- og selengjafi sem auðvelt er að gefa með fóðri eða drykkjarvatni.
    Skoða LiqVita ADE 60

 

  • Fóðurlýsi – 10% afsláttur
    Kaldhreinsað íslenskt lýsi, auðugt af A- og D-vítamínum og Omega-3 fitusýrum.
    Skoða fóðurlýsi

Tilboðin gilda 2.–20. nóvember 2026.

 

Góður undirbúningur skilar sér!

Fóðrun þarf að taka mið af gróffóðurgæðum og ástandi fjárins. Starfsfólk Líflands aðstoðar þig við valið.

 

Fóðraðu til fangs – með Líflandi!

Skoða vörur fyrir sauðfé