Fara í efni

Ungmennafélagið Afturelding

Ungmennafélagið Afturelding var stofnað árið 1924. Félagið er eitt af aðiladafélögum í Ungmennasambands Dalamanna og Norður- Breiðfirðinga (UDN).

Stjórn Aftureldingar;

Styrmir Sæmundsson,formaður 847-8097

Herdís Erna Matthíasdóttir, ritari 690-3825

Sandra Rún Björnsdóttir, gjaldkeri 867-0250

 

Sagan.

Í 90 ára afmælisfagnaði UDN, sem haldinn var í Búðardal, flutti Egill Sigurgeirsson á Mávavatni á Reykhólum samantekt um stofnun Ungmennasambands Norður-Breiðfirðinga og ungmennafélög sem starfað hafa í Austur-Barðastrandarsýslu. Þar kemur fram, að á fyrri tíð voru starfandi ungmennafélög í öllum hreppunum fimm í sýslunni, sem frá 1987 mynda saman Reykhólahrepp hinn nýja. Eftirfarandi kom fram í máli Egils:

Ungmennasamband Norður-Breiðfirðinga var stofnað í Flatey 1. desember 1936 og hafði Ungmennafélagið í Flatey forgöngu um stofnun þess. Sambandssvæðið spannaði Austur-Barðastrandarsýslu með eftirtöldum félögum:

  • Ungmennafélagið í Flatey, stofnað 1909 (ekki vitað hvenær það varð óvirkt).
  • Ungmennafélagið Vísir í Múlasveit, stofnað 1928 (síðasti skráði fundur 1957).
  • Ungmennafélagið Hvöt í Gufudalssveit, stofnað 1927 (starfsemin leggst af um 1956).
  • Ungmennafélagið Unglingur í Geiradal, stofnað 1909 (síðasti skráði fundur 1980, sameinað Aftureldingu 1989).
  • Ungmennafélagið Elding í Reykhólasveit, líklega 1906-1910, en litlar heimildir eru til um félagið.
  • Ungmennafélagið Afturelding í Reykhólasveit, stofnað 1924, starfar enn og er jafnframt eina starfandi ungmennafélagið í Austur-Barðastrandarsýslu / Reykhólahreppi.

Áður en Ungmennasamband Norður-Breiðfirðinga var stofnað tilheyrðu félögin á svæðinu Ungmennasambandi Vestfjarða (UMSV).”