Fara í efni

Hunda- og kattahreinsun í Reykhólahreppi 30. nóv.

23.11.2026
Fréttir

Mánudaginn 30. nóvember fer fram lögbundin hunda- og kattahreinsun í Reykhólahreppi.

Hreinsunin fer fram í áhaldahúsi sveitarfélagsins kl. 16 – 17.

Ormahreinsun hunda og katta er innifalin í leyfisgjaldi.

Óskráð dýr er hægt að skrá á staðnum.

Dýralæknir býður einnig upp á bólusetningar, fyrir þær þarf að greiða sérstaklega.

 

Ida Bergit Rognsvag dýralæknir annast hreinsunina.