Björgunarsveitin Heimamenn selur neyðarkallinn
10.11.2026
Fréttir
Lovísa Ósk Jónsdóttir, Tindur Ólafur Guðmundsson og Þórólfur Sigurðsson.
Félagar úr Björgunarsveitininni Heimamenn hafa síðustu daga staðið fyrir árlegri fjáröflun með sölu neyðarkallsins og hefur verið vel tekið af íbúum Reykhólahrepps. Reykhólahreppur styrkti eins og áður starf björgunarsveitanna með kaupum á neyðarkalli ársins og starfsfólk skrifstofu Reykhólahrepps þau Lovísa Ósk Jóndóttir og Þórólfur Sigurðsson tóku á móti neyðarkallinum frá Tindi Ólafi Guðmundssyni, formanni björgunarsveitarinnar.
Reykhólahreppur vill nýta tækifærið og þakka björgunarsveitinni Heimamönnum og Landsbjörgu fyrir að standa vaktina fyrir okkur í öllum aðstæðum.