Huggulegt kvöld í skóginum
Í fyrra var ákveðið á aðalfundi Skógræktarfélagsins Bjarkar að byggja "íhugunarpall" í fallegu skógræktinni okkar.
Eftir könnunarferðir fundum við góðan stað og létum smíða pall í sumar.Til þess fengum við styrk úr Frumkvæðissjóði Fjársjóðs fjalla og fjarða, hjá verkefninu Brothættar byggðir. Fyrirtækið Grund Verk var ráðið í verkin.
Þriðjudagskvöldið, þann 27. okt. hittumst við í skóginum til að vígja pallinn og eiga huggulega kvöldstund saman.
Staðurinn með pallinum var nefndur "Lóulundur" til heiðurs Halldóru Játvarðardóttur sem var mjög virk í Skógræktarfélaginu í mörg ár.

Það var líka boðið upp á heitt kakó og að baka prik brauð yfir varðeldinum.

Áttum við mjög skemmtilega stund saman.
Skógurinn er opinn öllum allan sólarhringinn og pallinn má nota til að íhuga, fara í lautarferð, halda ræðu, dansa eða hvað sem þér dettur í hug.
Og stuðið í skóginum heldur áfram, sunnudaginn, þann 22.11., klukkan 15 munum við hittast til að föndra vetrarskreytingar.
Föndurefni verður á staðnum og heitt kakó að sjálfsögðu líka.
Hlökkum til að sjá sem flest ykkar
Skógardísirnar þrjár,
Ásta, Bettina og Þórdís