Sumarnámskeið Reykhólahrepps og umf. Aftureldingar 2026
04.06.2026
Fréttir
Sumarnámskeiðið er fyrir börn á aldrinum 6 –13 ára og einnig börn fædd árið 2020.
Frá 8. til 25. júní verður námskeiðið haldið frá mánudegi til fimmtudags frá kl. 9:00 til 14:00 (að undanskildum þjóðhátíðardegi 17. júní).
Námskeiðsgjald:
2.100 kr. á dag - innifalið eru léttar veitingar og ávaxtahressing.
Hádegismatur:
Foreldrar geta valið hvort börnin fái hádegismat í skólanum (1.300 kr. máltíðin), sem framreiddur er af Búðinni, eða komi með nesti að heiman (ekki til upphitunar).