Fara í efni

Starf sveitarstjóra í Reykhólahreppi

16.06.2026
Fréttir

Reykhólahreppur leitar að framsýnum og öflugum leiðtoga í starf sveitarstjóra til að leiða uppbyggingu, verkefni og daglegan rekstur sveitarfélagsins á kjörtímabilinu í góðu samstarfi við sveitarstjórn.

Ítarlegri upplýsingar hér í Laus störf

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Ábyrgð á framkvæmd ákvarðana sveitarstjórnar
  • Daglegur rekstur sveitarfélagsins og yfirstjórn starfsmannamála
  • Yfirumsjón með skipulagi og virkni stjórnsýslu sveitarfélagsins
  • Náið samstarf með sveitarstjórn, undirbúningur funda og upplýsingagjöf
  • Hagsmunagæsla Reykhólahrepps og vera talsmaður sveitarfélagsins
  • Annast samskipti við íbúa, samstarfsaðila, stofnanir, fyrirtæki og samtök
  • Stefnumótun og mótun framtíðarsýnar í málefnum sveitarfélagsins
  • Leiða uppbyggingu og eflingu atvinnulífs og ferðaþjónustu á svæðinu

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi
  • Þjónustulund og framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
  • Leiðtogahæfni, frumkvæði og hugmyndaauðgi
  • Reynsla af stefnumótun, stjórnun, rekstri og fjármálum
  • Áhugi á uppbyggingu samfélagsins og markaðssetningu
  • Góð þekking á opinberri stjórnsýslu og sveitarstjórnarmálum
  • Reynsla af störfum á vettvangi sveitarstjórnarstigs er æskileg
  • Framúrskarandi færni í íslensku í ræðu og riti
  • Mjög góð færni í ensku í ræðu og riti
  • Mjög góð almenn tölvukunnátta skilyrði
  • Greinargóð þekking á málefnum sveitarfélagsins er kostur

Umsóknarfrestur er til og með 28. júní 2026. Umsókn skal fylgja ítarleg ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjenda til að gegna starfinu ásamt upplýsingum um meðmælendur.

Umsóknum skal skilað til Árnýjar Huldar Haraldsdóttur, oddvita sveitarstjórnar Reykhólahrepps á netfangið: arny@reykholar.is

Nánari upplýsingar veita

Árný Huld Haraldsdóttir, oddviti (arny@reykholar.is) í síma 848 4090

Embla Dögg B. Jóhannsdóttir, varaoddviti (embla@reykholar.is) í síma 772 9499