Fara í efni

Auglýst er starf sveitarstjóra í Reykhólahreppi

Sveitarstjóri Reykhólahrepps

Reykhólahreppur leitar að framsýnum og öflugum leiðtoga í starf sveitarstjóra til að leiða uppbyggingu, verkefni og daglegan rekstur sveitarfélagsins á kjörtímabilinu í góðu samstarfi við sveitarstjórn. Um er að ræða fjölbreytt og krefjandi starf sem reynir á leiðtogahæfni, frumkvæði og framúrskarandi samskiptafærni.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Ábyrgð á framkvæmd ákvarðana sveitarstjórnar
  • Daglegur rekstur sveitarfélagsins og yfirstjórn starfsmannamála
  • Yfirumsjón með skipulagi og virkni stjórnsýslu sveitarfélagsins
  • Náið samstarf með sveitarstjórn, undirbúningur funda og upplýsingagjöf
  • Hagsmunagæsla Reykhólahrepps og vera talsmaður sveitarfélagsins
  • Annast samskipti við íbúa, samstarfsaðila, stofnanir, fyrirtæki og samtök
  • Stefnumótun og mótun framtíðarsýnar í málefnum sveitarfélagsins
  • Leiða uppbyggingu og eflingu atvinnulífs og ferðaþjónustu á svæðinu

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi
  • Þjónustulund og framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
  • Leiðtogahæfni, frumkvæði og hugmyndaauðgi
  • Reynsla af stefnumótun, stjórnun, rekstri og fjármálum
  • Áhugi á uppbyggingu samfélagsins og markaðssetningu
  • Góð þekking á opinberri stjórnsýslu og sveitarstjórnarmálum
  • Reynsla af störfum á vettvangi sveitarstjórnarstigs er æskileg
  • Framúrskarandi færni í íslensku í ræðu og riti
  • Mjög góð færni í ensku í ræðu og riti
  • Mjög góð almenn tölvukunnátta skilyrði
  • Greinargóð þekking á málefnum sveitarfélagsins er kostur

Um Reykhólahrepp:

Í Reykhólahreppi búa um 250 íbúar og þar af um helmingur í þorpinu á Reykhólum. Reykhólahreppur er á sunnanverðum Vestfjörðum og honum tilheyra Flatey og aðrar Vestureyjar Breiðafjarðar. Svæðið státar af einstakri náttúrufegurð og fjölbreyttu fuglalífi. Reykhólahreppur býr við ríkar auðlindir jarðhita víða um sveitarfélagið og fjölda nýtanlegra gæða til lands og sjávar. Það býður upp á einstök lífsgæði í fallegu fjölskylduvænu umhverfi og fjölbreytt tækifæri til uppbyggingar og atvinnuþróunar.

Á Reykhólum er að finna margvíslega þjónustu. Þar er samrekinn leik-, grunn- og tónlistarskóli, frístund barna og félagsmiðstöð, hjúkrunar- og dvalarheimili Barmahlíðar, sundlaug, tjaldsvæði, íþróttahús og líkamsrækt, heilsugæsla, Báta- og hlunnindasýning og verslun og veitingasala Bakkabúðarinnar auk ýmissar annarrar þjónustu. Þar starfa Þörungaverksmiðjan hf. og saltverksmiðja Norður & Co ehf. Hótel og veitingastaður er einnig rekið í nágrenni Reykhóla í Bjarkalundi og framundan eru spennandi og áhugaverðir tímar í uppbyggingu og atvinnuþróun sveitarfélagsins á kjörtímabilinu, t.d. á Króksfjarðarnesi, í Garpsdal og í uppbyggingu ferðaþjónustu um sveitarfélagið.

Umsóknarfrestur er til og með 28. júní 2026. Umsókn skal fylgja ítarleg ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjenda til að gegna starfinu ásamt upplýsingum um meðmælendur.

Umsóknum skal skilað til Árnýjar Huldar Haraldsdóttur, oddvita sveitarstjórnar Reykhólahrepps á netfangið: arny@reykholar.is

Við val á umsækjanda verður horft til hæfni, reynslu og þeirrar sýnar sem best samræmist markmiðum sveitarfélagsins og sveitarstjórnar. Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um starfið. Reykhólahreppur áskilur sér rétt til að birta lista yfir nöfn umsækjenda opinberlega að umsóknarfresti liðnum.

Nánari upplýsingar veita

Árný Huld Haraldsdóttir, oddviti (arny@reykholar.is) í síma 848 4090

Embla Dögg B. Jóhannsdóttir, varaoddviti (embla@reykholar.is) í síma 772 9499