Fara í efni

Sumarstarf við umsjón húsnæðis Reykhólaskóla vegna útleigu sumarið 2024

Reykhólarheppur auglýsir eftir aðila til að taka að sér umsjón og ræstingar á húsnæði Reykhólaskóla vegna leigu til samkomuhalds og ættarmóta, sumarið 2024.

Starfið fellst í móttöku og aðstoð við leigjendur og þrif að leigu lokinni. Skólahúsnæðið er aðallega leigt út um helgar. Umsækjendur þurfa að hafa náð 18 ára aldri vera sjálfstæðir í vinnubrögðum og góðir í mannlegum samskiptum.

Upplýsingar um starfið gefur sveitarstjóri í síma 4303200.

Laun fara eftir kjarasamningum SÍS og viðkomandi stéttarfélags. Sótt er um á vef Reykhólahrepps, eða hér: https://www.reykholar.is/is/moya/formbuilder/index/index/umsokn-um-starf.