Fara í efni

Umhverfisvottun Vestfjarða - EarthCheck

Reykhólahreppur í samstarfi við sveitarfélögin á Vestfjörðum hefur einsett sér að skara framúr í umhverfismálum og að vera stóriðjulausr sveitarfélag. Hluti af því ferli var að fá umhverfisvottun á rekstur sveitarfélagsins og um leið allra sveitarfélaganna á Vestfjörðum. Því markmiði var náð 2016 þegar að Vestfirðir fengu silfurvottun EarthCheck. 

Þann 8. nóvember 2012 tóku sveitarfélögin á Vestfjörðum ákvörðun um að gerast aðilar að umhverfisvottunarsamtökunum EarthCheck, sem voru einu umhverfisvottunarsamtök í heimi sem votta samfélög. Fjórðungssamband Vestfirðinga sá um utanumhald verkefnisins og vann þær skýrslur sem þurfti til að fá vottunina. Með þessari aðgerð skuldbundu sveitarfélögin sig til að taka mið af umhverfinu í öllum sínum ákvörðunum og tryggja sjálfbæra nýtingu svæðisins.
Sveitarfélögin á Vestfjörðum eru með silfurvottun vegna starfssemi sinnar fyrir starfsárið 2020.

Í júlí 2019 tók Náttúrustofa Vestfjarða við verkefninu og sér það alfarið um verkefnið. Starfsmaður hjá Nave, Guðfinna Lára Hávarðardóttir, heldur utan um verkefnið og sér um að uppfæra öll þau gögn sem þarf að hafa tilbúin til að fá árlegar vottanir svo sem framkvæmdaráætlun sveitarfélaganna, lagakrá, sameiginlega stefnu, fundi græns teymis og Græn skref. Öll gögn tengdum vottuninni má nálgast hér á síðu Vestfjarðarstofu. Vestfjarðastofa hefur yfirumsjón með verkefninu.