Fara í efni

Reykhólahreppur auglýsir stöðu kennara/leiðbeinanda við Reykhólaskóla lausa til umsóknar.

Reykhólahreppur auglýsir stöðu kennara/leiðbeinanda við Reykhólaskóla lausa til umsóknar.

Auglýst er eftir kennara sem getur kennt á öllum stigum í Reykhólaskóla. Skólinn er samrekinn leik- og grunnskóli með frístund og tónlistardeild undir einu þaki. Kennarar taka að sér fjölbreytta kennslu og eru verkefni gjarnan samþætt. Kennt er í námstímabilum og komin góð reynsla á það. Sérstaklega er leitað eftir kennara sem getur kennt list-og verkgreinar.

Í samreknum skóla eru um 45 nemendur, um 30 nemendur í grunnskóladeild. Einkunnarorð skólans eru Vilji er vegur.

Nánari upplýsingar um skólann er hægt að sjá á reykholaskoli.is. Reykhólar er sveitarfélag með um 270 íbúa og þar af býr um helmingur þeirra í þéttbýlinu á Reykhólum. Ráðið verður í störfin frá og með 1. janúar 2027.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Samkennsla á yngsta stigi, miðstigi og unglingastigi
  • Kennsla í list- og verkgreinum
  • Teymiskennsla með öllum kennurum skólans eftir þörfum
  • Ber ábyrgð á námi- og velferð nemendahópsins
  • Vinna samkvæmt skólastefnu Reykhólaskóla og Reykhólahrepps

Menntunar -og hæfiskröfur

  • Kennaramenntun og leyfisbréf eða önnur sambærileg menntun
  • Metnaður og hæfni til að vinna eftir fjölbreyttum og árangursríkum kennsluaðferðum með áherslu á samþættingu og leiðsagnarnám
  • Lipurð og hæfni í mannlegum samskiptum
  • Frumkvæði, sjálfstæði og sveigjanleiki í vinnubrögðum
  • Jákvæðni og áhugi á að starfa í metnaðarfullu umhverfi
  • Áhugi á fræðslu barna og velferð þeirra
  • Reglusemi og samviskusemi
  • Hefur hreint sakavottorð
  • Góð íslenskukunnátta

 

Fríðindi í starfi

Sá sem ráðinn verður í starfið nýtur jafnframt ýmissa hlunninda, þar á meðal flutningastyrks, gjaldfrjáls leikskóla og líkamsræktarstyrks. Svæðið býður upp á einstaka nálægð við náttúru og rólegt, fallegt umhverfi.

 

Annað

Launakjör eru samkvæmt samningum Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands.

Umsóknum skal fylgja greinargott yfirlit um nám og störf (ferilskrá), leyfisbréf til kennslu, kynningarbréf og meðmæli. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningar hefur verið tekin..

 

Umsóknarfrestur er til og með 3. desember 2026.

Nánari upplýsingar veitir Ásta Sjöfn Kristjánsdóttir skólastjóri Reykhólaskóla á netfangið skolastjori@reykholar.is, eða í síma 434-7731. Ferilskrá og umsókn má einnig senda á skolastjori@reykholar.is.