Fara í efni

Vorfagnaður Félags eldri borgara í Dölum og Reykhólahreppi

11.04.2024
Fréttir

Fimmtudagurinn 18. apríl, kvöldverður að Laugum kl. 18:00.

Þá er komið að loka hitting vorsins hjá félagi eldri borgara, það er kvöldverður að Laugum fimmtudaginn 18. april, þetta er sameiginlegur viðburður með Reykhólum og Hólmavík.

Verð er kr. 8.500 á mann.

Þarna verður veturinn kvaddur með mat og söng.

Matseðilinn hljómar upp á eftirfarandi:

Súpa og nýbakað brauð.

Lambasteik með tilheyrandi.

Eftirréttur og kaffi.

Jón Egill Jónsson tekur við pöntunum í síma 867-5604 eða tölvupósti tomstund@dalir.is

Hægt er að panta til og með þriðjudags 16. april.