Fara í efni

Vinnustofa fyrir styrkþega Ff&f - lokaskýrslur

24.10.2026
Fréttir

Vinnustofa fyrir styrkþega

Frumkvæðissjóður Fjársjóðs fjalla og fjarða

Hefur þú fengið styrk úr Frumkvæðissjóði Fjársjóðs fjalla og fjarða og þarft að ganga frá lokaskýrslu?

Komdu á vinnustofu og fáðu aðstoð við að vinna að og ganga frá lokaskýrslu verkefnisins þíns.

Fimmtudaginn 5. nóvember 2026
Kl. 17:00–19:00 · Grunnskóli Reykhólahrepps

Hvað verður farið yfir?

Við förum saman yfir skýrslueyðublaðið og aðstoðum meðal annars við að:

  • Lýsa framkvæmd verkefnisins og þeim árangri sem náðst hefur.
  • Setja upp yfirlit yfir verkþætti, tímasetningar og vinnustundir.
  • Taka saman kostnað og fjármögnun verkefnisins.
  • Ganga frá kynningartexta, myndum og fylgigögnum.

Hvað er gott að taka með?

Til að nýta tímann sem best eru þátttakendur beðnir um að koma með:

  • Lokaskýrsluna, ef þegar er byrjað að vinna í henni.
  • Afrit af löglegum reikningum og önnur gögn um kostnað verkefnisins.
  • Daglega tímaskráningu með dagsetningum, nöfnum, verkþáttum og vinnustundum.
  • Yfirlit yfir tekjur og fjármögnun, þar á meðal eigið framlag og styrki.
  • Myndir af verkefninu eða afrakstri þess, ef við á.

Takið gjarnan með fartölvu ef þið hafið tök á.

Undirbúningur fyrir vinnustofuna

Gott er að hafa hugleitt hvað tókst vel, hvað breyttist á leiðinni og hvernig verkefnið hefur nýst byggðarlaginu.

Þátttakendur eru einnig hvattir til að kynna sér eftirfarandi eyðublöð fyrir fram:

Eyðublöðin má einnig finna á síðu Fjársjóðs fjalla og fjarða hjá Vestfjarðastofu.

https://www.vestfirdir.is/is/verkefni/byggdathroun/brothaettar-byggdir-i-reykholahrepp

Ekki þarf að vera búið að skrifa skýrsluna fyrir fram – komið með gögnin og við vinnum áfram saman!

Verið hjartanlega velkomin.