Fara í efni

Víkingurinn 2023

11.04.2023
Fréttir

Ákveðið hefur verið að gera breytingar á þann veg að sameina Vestfjarðavíkinginn, Austfjarðatröllið og Norðurlands Jakann í eitt mót: VÍKINGURINN.

Aðal ástæða er skortur á fjármagni; all verulega aukinn kostnaður; og stytting á sýningartíma þátta í sjónvarpi. Sýningar á þáttunum hafa ennfremur dregist fram úr hófi.

Viljum við einbeita okkur að einu stóru góðu móti, þar sem við fáum lengri sýningartíma til að skila betri umfjöllun um hvern stað, staðhætti, sögu og annað menningarlegt og að stuðningsaðilar séu vel sýnilegir.

Ef þið misstuð af sýningu á Vestfjarðavíkingnum þá er hér linkur til að sjá mótið.

https://www.ruv.is/sjonvarp/spila/vestfjardavikingurinn/33799/a2akbh