Viðhald á kirkjugarðinum í Garpsdal
22.06.2025
Fréttir

mynd, kirkjublaðið.is
Í næstu viku verður hafist handa við lagfæringar í kirkjugarðinum í Garpsdal. Girðingin um garðinn verður endurnýjuð og leiði sem hafa sigið og veðrast verða löguð.
Þetta verður gert í sem bestu samráði við þá sem sinnt hafa um leiði ástvina í garðinum og aðra sem vilja koma með ábendingar.
Spurningum eða athugasemdum þarf að koma á framfæri sem allra fyrst.
Nánari upplýsingar veitir Ingibjörg í Garpsdal í s. 892 1768.