Fara í efni

Verksmiðjuhús saltverksmiðjunnar stækkað

03.02.2026
Fréttir

Þessa dagana er verið að klæða viðbyggingu á verksmiðjuhúsi Norðursalts. Þetta er límtréshús klætt með yleiningum. Það er um 9 m. hátt og tæpl. 90 m2 að grunnfleti.

Þarna er verið að byggja yfir sjótanka verksmiðjunnar, en með því vinnst að hitastig í þeim verður jafnara og vinna við umsjón og þrif verður auðveldari.

Það eru menn frá byggingafyrirtækinu Kára Arnórssyni ehf og heimamennirnir Eríkur Kristjánsson og Brynjólfur Smárason sem eru að reisa húsið.