Fara í efni

Verkefnisstjóri óskast á Reykhólum

03.06.2026
Fréttir

Vestfjarðastofa, með stuðningi Byggðastofnunar, auglýsir eftir verkefnisstjóra í Reykhólahreppi. Verkefnisstjóri gegnir hlutverki leiðtoga verkefnisins Brothættra byggða í Reykhólahreppi ásamt verkefnisstjórn og starfar hann í umboði hennar að aðgerðum til eflingar byggðar og mannlífs í Reykhólahreppi.

Verkefnið hófst árið 2025 og er til fimm ára og er hluti af verkefnum Brothættra byggða og er samstarfsverkefni Byggðastofnunar, Vestfjarðastofu og Reykhólahrepps.

Um er að ræða 100% starf með starfsstöð á Reykhólum.

Nánar í laus störf