Vel sóttur íbúafundur á Reykhólum
21.06.2025
Fréttir

Íbúar Reykhólahrepps fjölmenntu á fyrsta íbúafundinn sem haldinn var 19. júní, undir merkjum byggðaþróunarverkefnisins Fjársjóður fjalla og fjarða.
Frá því að tveggja daga íbúaþing var haldið í byggðarlaginu í mars sl. hefur verkefnisstjórn unnið að mótun svokallaðrar verkefnisáætlunar sem byggð er á grunni skilaboða íbúa frá íbúaþinginu og stöðugreiningu verkefnisstjórnar.
Hrefna Jónsdóttir, fulltrúi sveitarstjórnar í verkefnisstjórn, stýrði fundinum og að afloknum hópaumræðum fékk hún umboð frá fundinum um að verkefnisstjórn gæti lokið við verkefnisáætlunina, að teknu tilliti til ábendinga frá íbúum og gefið hana út opinberlega.
Nánar hér, á vef Byggðastofnunar.