Fara í efni

Vefstofa MERSE: Viðskiptamódel fyrir samfélagsrekstur í dreifbýli

24.03.2026
Fréttir

Hvernig byggir samfélagsrekstur í dreifbýli upp sjálfbær og árangursrík viðskiptamódel? Í vefstofu MERSE þann 26. mars verður sjónum beint að lykilatriðum í þróun og rekstri slíkra fyrirtækja, með áherslu á áskoranir og tækifæri sem felast í starfsemi utan stærri þéttbýlissvæða.

Vefstofan fer fram í gegnum Zoom og hefst kl.9:30 að íslenskum tíma. Hún er á vegum MERSE sem er alþjóðlegt samstarfsverkefni á vegum NPA áætlunar Evrópusambandsins og er opin öllum sem hafa áhuga á samfélagslegri nýsköpun, atvinnuþróun í dreifbýli og uppbyggingu sjálfbærra rekstrarlíkana.

Meira á vef Vestfjarðastofu

Skráning fer fram hér