Úthlutunarathöfn Frumkvæðissjóðs FFF, 10. júní 2026
Þann 10. júní fór fram úthlutunarathöfn Frumkvæðissjóðs Fjársjóðs fjalla og fjarða í Bjarkarlundi.
Mæting var afar góð og ríkti þar mikil gleði, bjartsýni og öflugur frumkvöðlaandi. Athöfnin sýndi glögglega þann kraft sem býr í íbúum, félagasamtökum og fyrirtækjum í Reykhólahreppi og nærsamfélagi.
Alls bárust 32 umsóknir í sjóðinn að þessu sinni. Heildarupphæð umsókna nam 56.000.700 krónum og samanlagður heildarkostnaður verkefnanna var 163.810.600 krónur.
Af þeim umsóknum sem bárust hlutu 30 verkefni styrk og var samtals úthlutað 11.500.000 krónum úr sjóðnum. Fjölbreytni verkefnanna endurspeglar vel þann metnað og sköpunarkraft sem einkennir samfélagið, allt frá menningar- og samfélagsverkefnum til atvinnuuppbyggingar, nýsköpunar og ferðaþjónustu.
Verkefnisstjórn Fjársjóðs fjalla og fjarða óskar öllum styrkþegum innilega til hamingju með styrkina og hlakkar til að fylgjast með framgangi verkefnanna á komandi misserum.
Styrkþegar 2026:
Konráð Ari Skarphéðinsson – A Promotional Children's Book for Reykhólar – kr. 150.000.-
Lovísa Ósk Jónsdóttir – Augnablik í Reykhólahreppi – kr. 50.000.-
Bátasafn Breiðafjarðar á Reykhólum – Braggi á Reykhólum – kr. 700.000.-
Guðmundur Ólafsson – Dráttarvélasafn – kr. 200.000.-
Bakka-búðin ehf. – Efling samfélagslegrar aðstöðu og miðlunar – kr. 350.000.-
Framfarafélag Flateyjar – Eyjaþing 2026 – kr. 250.000.-
Leifur Samúelsson – Fjölgun gistirýma – næsta skref – kr. 750.000.-
Gálgaklettur ehf. – Gufsan – kr. 300.000.-
Þóra Mjöll Jensdóttir – Kaffi í kyrðinni – kr. 500.000.-
Eydís Sunna Harðardardóttir – Litli Tindar – kr. 100.000.-
Lovísa Ósk Jónsdóttir – Ljósmyndarprentari fyrir Augnablik – kr. 100.000.-
Eydís Örk Sævarsdóttir – Matarkista Breiðafjarðar – kr. 1.500.000.-
Björn Samúelsson – Miðaldavirki á Kaldrana á Reykhólum – kr. 350.000.-
TogG Miðjanes ehf. – Miðjanes tjaldstæði – kr. 300.000.-
Guðlaug G.I.M. Bergsveinsdóttir – Örlaganorn að störfum – kr. 600.000.-
Ísak Logi Brynjólfsson – Rakarastóll – kr. 150.000.-
Gyða Steinsdóttir – Saga Flateyjarkirkju – ljósmyndarsýning – kr. 150.000.-
Saltaðar píkur – Sjósundsaðstaða við Seljanes – kr. 250.000.-
Mussel Company – Skelsetur Íslands – kr. 300.000.-
Skógræktarfél. Björk í Reykhólahreppi – Söguskilti og áningapallar – kr. 300.000.-
Kolbeinn Óskar Bjarnason – Steypt dansgólf – kr. 250.000.-
Vinarfélag Barmahlíðar – Styrkur fyrir tækjakaupum Barmahlíðar – kr. 200.000.-
Bakka-búðin ehf. – Trúbadorakvöld – lifandi tónlist og samvera – kr. 250.000.-
Úr sveitinni ehf. – Ullarvinnsla í Reykhólahreppi – næstu skrefin – kr. 450.000.-
Andrea Björnsdóttir – Uppbygging gistirýma á Skálanesi – kr. 750.000.-
Bakka-búðin ehf. - Aðstaða til matvælavinnslu og veitingasölu – kr. 400.000.-
Arnkatla lista- og menningarfélag – Úti tónleikahald í Bjarkalundi – kr. 800.000.-
Tómas Sigurgeirsson og Svanhildur Sigurðardóttir –Saga Sjóvarshúss – kr. 300.000.-
Guðjón D. Gunnarsson – Verdigo áburðarrannsókn – kr. 600.000.-
Vinarfélag Barmahlíðar – Viðburðir fyrir heimilisfólk Barmahlíðar – kr. 150.000.-
Við óskum öllum styrkþegum hjartanlega til hamingju og þökkum öllum umsækjendum fyrir áhugann, metnaðinn og framlag sitt til öflugs og fjölbreytts samfélags.