Fara í efni

Uppbyggingarverkefni í Króksfjarðarnesi

18.02.2026
Fréttir
Króksfjarðarnes
Króksfjarðarnes

2 af 4 verkefnum á Vestfjörðum sem hljóta styrk af Byggðaáætlun eru fyrirhuguð í Króksfjarðarnesi.

Annars vegar er Matvælasetur í Króksfjarðarnesi og hins vegar Þróunarfélag Króksfjarðarness.

Matarkista Breiðafjarðar. Matvælasetur í Króksfjarðarnesi

Verkefnið felst í uppbyggingu matvælaseturs á Króksfjarðarnesi í Reykhólahreppi til að styðja við matvælanýsköpun og atvinnuuppbyggingu með framleiðslu „Beint frá býli“. Setrið mun bjóða upp á vottaða framleiðsluaðstöðu, framleiðslutæki og vinnslurými fyrir bændur og frumkvöðla til þróunar og framleiðslu á frum- og lokaafurðum í atvinnuskyni, s.s. landbúnaðarafurðum og sjávarafurðum skelfisk, þangs og þara.

Þróunarfélag Króksfjarðarness. Uppbygging atvinnu, þjónustu og íbúðarbyggðar á Króksfjarðarnesi

Verkefnið snýr að því að fjármagna þróunarfélag sem hefur það markmið að markaðsetja Króksfjarðarnes sem ákjósanlegan fjárfestingarkost með samningum við uppbyggingar aðila. Króksfjarðarnes er anddyri Vestfjarða og svæði með gífurleg tækifæri til framtíðaruppbyggingar. Í kringum Króksfjarðarnes er að finna ónýttan jarðvarma sem getur nýst til margskonar atvinnustarfsemi í ferðþjónustu, landbúnaði og eldi.

Hér er fréttin í heild á vef Vestfjarðastofu