Fara í efni

Uppbyggingarsjóður Vestfjarða hefur opnað fyrir umsóknir

11.10.2023
Fréttir

Uppbyggingarsjóður Vestfjarða hefur opnað fyrir umsóknir. Tilgangur sjóðsins er að styrkja menningar-, atvinnuþróunar- og nýsköpunarverkefni á Vestfjörðum. Umsóknarfrestur er til kl. 16 þann 2. nóvember og skal umsóknum skilað í gegnum umsóknarform á heimasíðu Vestfjarðastofu en þar er einnig að finna nánari leiðbeiningar.

Fyrir þá sem vilja getur Hrafnkell Guðnason verkefnastjóri hjá Reykhólahreppi veitt aðstoð við mótun verkefna og leiðbeint í gegnum umsóknarformið. Tölvupóstur hans er hrafnkell@reykholar.is eða í síma 775-6979.