Tillaga Svæðisskipulags Vestfjarða 2025-2050 kynnt
Kynningartillaga Svæðisskipulags Vestfjarða 2025-2050 er nú komin í Skipulagsgátt þar sem hún verður opin til umsagnar fram til 7. apríl. Sveitarfélögin átta á Vestfjörðum hafa samþykkt tillöguna en á kynningartímabilinu er kallað eftir athugasemdum frá Vestfirðingum og öðrum hagaðilum.
Kynningartillaga Svæðisskipulags Vestfjarða verður til umfjöllunar á opnum fundum sem hér segir:
24. febrúar: Félagsheimilið á Hólmavík
25. febrúar: Edinborgarhúsið á Ísafirði
26. Febrúar: Félagsheimili Patreksfjarðar
Fundirnir hefjast klukkan 17:00 og eru öllum opnir.
Tillagan sem nú liggur fyrir í Skipulagsgátt er niðurstaða af víðtæku íbúasamráði og greiningarvinnu, og nú er hægt er að gera athugasemdir sem áður segir, til og með 7. apríl 2026.
Til að kynna sér enn betur Svæðisskipulag Vestfjarða 2025-2050 er hægt að fara inn á þessa síðu.