Tilkynning um framboðsfrest vegna sveitarstjórnarkosninga 16. maí 2026
01.04.2026
Fréttir
Framboðsfrestur vegna sveitarstjórnarkosninga sem fara fram 16. maí 2026, rennur út föstudaginn 10. apríl kl. 12:00 á hádegi.
Framboðslistar skulu hafa borist yfirkjörstjórn Reykhólahrepps áður en fyrrgreindur framboðsfrestur rennur út.
Upplýsingar um skil á framboðum og gögnum sem þurfa að fylgja eru á kosning.is .
Ef engir framboðslistar verða lagðir fram verða óhlutbundnar kosningar og allir kjörgengir í kjöri. Þeir sem löglega geta skorast undan kjöri, þurfa tilkynna kjörstjórn það skriflega áður en framboðsfrestur rennur út, þann 10. apríl 2026, kl. 12.
Yfirkjörstjórn Reykhólahrepps,
Steinunn Ó. Rasmussen formaður,
Sveinn Ragnarsson,
Sandra Rún Björnsdóttir.