Fara í efni

Tilboðum hafnað í brú yfir Djúpafjörð en efnt til samkeppnisviðræðna

19.10.2026
Fréttir

Vegagerðin hefur ákveðið að hafna báðum tilboðunum sem bárust í lokaáfanga Vestfjarðavegar um Gufudalssveit. Í staðinn hefur verktökunum verið boðið að taka þátt í samkeppnisviðræðum með það að markmiði að ná niður kostnaði án þess að verklokum seinki.

„Báðum tilboðum hefur verið hafnað, en báðir bjóðendur hafa samþykkt að fara í samkeppnisviðræður við Vegagerðina sem fara af stað núna á næstu dögum,“ segir G. Pétur Matthíasson, forstöðumaður samskiptadeildar Vegagerðarinnar, í viðtali við Kristján Má Unnarsson hjá visir.is .

-Hvenær vonast menn til að fá niðurstöðu? Er stefnt að óbreyttum verklokum eða gæti þeim seinkað?

„Þetta tekur líklega einhverjar vikur og mér finnst ólíklegt að verklokum seinki,“ svarar G. Pétur en samkvæmt útboðsauglýsingu Vegagerðarinnar eru verklok áætluð þann 1. október 2028, eftir tvö ár.