Fara í efni

Þörungaverksmiðjan fær nýtt skip til þaraöflunar

02.11.2026
Fréttir

Í síðustu viku kom til heimahafnar á Reykhólum skip sem Þörungaverksmiðjan keypti í Noregi, sérbúið til þaraöflunar. Verður öflun og meðhöndlun hráefnis auðveldari og betri en áður hefur verið.

Skipið, sem reyndar er ekki alveg nýtt, fór í klössun í Njarðvíkurslipp þegar það kom til landsins áður en það kom vestur að Reykhólum.

Eins og hefð er fyrir var fleyið nefnt eftir eyju á Breiðafirði og hlaut nafnið Fagurey.

Meðfylgjandi myndir tók Björn Samúelsson þegar komu Fagureyjar var fagnað.