Fara í efni

Tækifæri til nýsköpunar á sauðfjárræktasvæðum

27.06.2023
Fréttir

Fjórðungssamband Vestfirðinga (FV), Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi (SSV) og Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra (SSNV) standa sameiginlega að verkefni til að efla byggð á landsvæðum sem eiga mest undir sauðfjárrækt.

Markmið verkefnisins er að hvetja til nýsköpunar og verðmætasköpunar. Tækifæragreining er fyrsta skrefið við framkvæmd verkefnisins.

Hlédís Sveinsdóttir og Björn Bjarnason sem unnu að gerð tillagna að baki fyrstu landbúnaðarstefnunni sem Alþingi samþykkti nú 1. júní 2023, vinna að greiningunni.

Dagana 28. júní til 4. júlí verða þau á ferð til að hlusta og fræðast. Markmið þeirra er að heyra sjónarmið sem flestra.

Við bjóðum því til opins samtals í Reykhólahreppi fimmtudaginn 29. Júní:

15:00 - 16:00    í Króksfjarðarnesi í handverkshúsinu/gamla Kaupfélaginu

16:30 - 18:00    á skrifstofu Reykhólahrepps ...og yrðum þakklát að heyra í sem flestum.

Öllum er velkomið að kynna hugmyndir í samtölum við þau Hlédísi og Björn eða með því að senda þær á netfangið hlediss@gmail.com