Fara í efni

Sveitarstjóraskipti hjá Reykhólahreppi

28.05.2025
Fréttir

Á fundi sínum 28. maí 2025 ákvað sveitarstjórn Reykhólahrepps að ganga til samninga við Ólaf Þór Ólafsson um að taka við sem sveitarstjóri í stað Ingibjargar Birnu Erlingsdóttur. Hún hefur verið farsæll sveitarstjóri sveitarfélagsins síðan árið 2010 að undanskildum árunum ágúst 2018 til maí 2020 en hefur nú ákveðið að hverfa til annara starfa.

Ólafur Þór er reyndur af vettvangi sveitarfélaganna og þekkir vel til þeirra verkefna sem þau sinna bæði sem kjörinn fulltrúi sem og ráðinn framkvæmdastjóri, síðast sem sveitarstjóri Tálknafjarðarhrepps árin 2020 til 2024. Þá er hann með MPA-gráðu í opinberri stjórnsýslu og kennsluréttindi. Gengið er út frá því að Ólafur Þór komi til starfa hjá Reykhólahreppi nú síðar í sumar.

 

Sveitarstjórn býður Ólaf Þór velkominn til starfa og þakkar Ingibjörgu fyrir vönduð störf í garð sveitarfélagsins og óskar henni velfarnaðar á nýjum vettvangi.

 

 

Jóhanna Ösp Einarsdóttir

Oddviti