Fara í efni

Svæðisskipulag Vestfjarða 2025-2050 undirritað

01.09.2026
Fréttir
Við undirritunarborðið sátu (frá vinstri) Hermann Jónsson, forstjóri HMS, Elísabet Margrét Jónsdóttir sveitarstjóri Súðavíkurhrepps, Gylfi Ólafsson bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar, Kristinn Gauti Einarsson staðgengill bæjarstjóra Bolungarvíkurkaupstaðar, Gerður Sveinsdóttir bæjarstjóri Vesturbyggðar, Kjartan Þór Ragnarsson sveitarstjóri Reykhólahrepps, Dagrún Fanný Liljarsdóttir sveitarstjóri Strandabyggðar, Finnur Ólafsson oddviti Kaldrananeshrepps og Sigrún Sverrisdóttir oddviti Árneshrepps.

Fulltrúar allra sveitarfélaga á Vestfjörðum og Húsnæðis, mannvirkja,- og skipulagsstofnunar (HMS) komu saman við minnismerki Kollabúðafunda í Þorskafirði miðvikudaginn 27. ágúst og undirrituðu nýtt Svæðisskipulag Vestfjarða 2025-2050. Með undirrituninni var staðfest sameiginleg framtíðarsýn sveitarfélaganna fyrir þróun samfélaga, atvinnulífs og umhverfis á Vestfjörðum næstu 25 árin.

Val á staðsetningu undirritunarinnar var ekki tilviljun. Kollabúðir skipa sérstakan sessi í sögu Vestfirðinga sem sameiginlegur vettvangur samráðs og ákvarðanatöku.

Kollabúðafundir voru haldnir um miðja nítjándu öld og var stofnað til þeirra með hvatningu Jóns Sigðurssonar, þingmanns Ísafjarðarsýslna, í anda nýrra sjónarmiða um aukin völd til íslenskra þjóðar að ráða sínum málum, en einnig fundir til að fjalla um málefni Vestfirðinga og Breiðfirðinga. Á Kollabúðum var einnig haldin Þorskafjarðarþing á þjóðveldistíma og öldum þar á eftir.

Staðsetning undirritunar Svæðisskipulags Vestfjarða sem sameiginlegs stefnuskjals vestfirskra sveitarfélaga til næstu 25 ára er því með sterkar sögulegar rætur. Með svæðisskipulaginu hafa sveitarfélögin náð saman um framtíðarsýn og sett markmið til að að framþróun samfélaga, atvinnulífs og umhverfis á Vestjörðum. Framkvæmd skipulagsins verður í höndum sveitarfélaganna í gegnum aðalskipulagsgerð og Sóknaráætlun Vestfjarða auk fleiri áætlana. En skipulagið veitir einnig áætlunum stjórnvalda leiðsögn hver sé stefna sveitarfélaganna á Vestfjörðum.

Af vef Vestfjarðastofu