Fara í efni

Súpufundur með Kristrúnu Frostadóttur

06.05.2026
Fréttir
Kristrún Frostadóttir
Kristrún Frostadóttir

Opinn fundur með Kristrúnu Frostadóttur, forsætisráðherra og formanni Samfylkingar, í kosningamiðstöð Samfylkingar og óháðra í húsnæði Báta- og hlunnindasýningarinnar á Reykhólum, fimmtudaginn 7. maí kl. 13:30.

Með á fundinum verða Arna Lára Jónsdóttir þingmaður Samfylkingar í Norðvesturkjördæmi, Hrefna Jónsdóttir oddviti Samfylkingar í Reykhólahreppi og fleiri frambjóðendur.

Hvað brennur á þér fyrir sveitarstjórnarkosningar? Hvernig gerum við sveitarfélagið þitt betra? Og hvernig styrkjum við samvinnu ríkis og sveitarfélaga?

Opið samtal með forsætisráðherra og frambjóðendum. Súpa í boði og heitt á könnunni. Í lok fundar munu Þorleifur Guðjónsson og Valdimar Flygenring flytja ljúfa tóna.

https://fb.me/e/4uQxLj2F5