Sumarstarf í Grettislaug
Reykhólahreppur auglýsir laus sumarstörf sundlaugavarða við sundlaugina Grettislaug á Reykhólum sumarið 2026.
Líkamsræktarstöð er starfrækt í sama húsnæði og sundlaugin og þar við hliðina er tjaldsvæði sem bæði tilheyra einnig vinnusvæðinu. Leitað er eftir einstaklingum með góða þjónustulund, sem hafa náð 18 ára aldri og geta unnið áreiðanlega og sjálfstætt. Starfshlutfall er 50-100% eftir samkomulagi.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Öryggisgæsla við laug, líkamsræktarstöð og eftirlit með öryggiskerfum
- Afgreiðsla og þjónusta við gesti sundlaugar, líkamsræktar og tjaldsvæðis.
- Eftirlit með sundlaug, heitum pottum, líkamsræktarstöð og hreinlætisaðstöðu
- Baðvarsla og þjónustustörf tengd tjaldsvæði
- Þrif á öllum vinnusvæðum
Menntunar- og hæfniskröfur
- Góð íslensku- og enskukunnátta skilyrði
- Góð samskiptahæfni og hafa ánægju af því að veita góða þjónustu
- Góð skipulagshæfni, áreiðanleiki og stundvísi
- Reynsla af þjónustustarfi er kostur
- Umsækjandi sem verður ráðinn í starfið skal framvísa sakavottorði áður en ráðning tekur gildi
Umsóknarfrestur er til og með 14. maí 2026. Umsókn skal fylgja ferilskrá.
Sótt er um í gegnum heimasíðu Reykhólahrepps á slóðinni https://www.reykholar.is/is/moya/formbuilder/index/index/umsokn-um-starf
Æskilegt væri að ráðnir umsækjendur gætu hafið störf 25. maí 2026. Allir starfsmenn Grettislaugar sækja sérstakt námskeið fyrir sundlaugarverði sem haldið verður 29. til 30. maí 2026.
Launakjör eru samvæmt kjarasamningi hlutaðeigandi stéttarfélags og Sambands íslenskara sveitarfélaga.
Frekari upplýsingar um starfið veitir Lýðheilsufulltrúi Marie-Susann Zeise, í síma 857-9059, eða á netfanginu marie@reykholar.is