Fara í efni

Starfsmann vantar til að sjá um félagsstarf í Barmahlíð

12.12.2023
Fréttir

Félagsþjónusta Stranda og Reykhólahrepps stendur fyrir félagsstarfi tvisvar í viku á Hjúkrunarheimilinu Barmahlíð á Reykhólum.

Frá og með janúar 2024 vantar starfsmann til að sjá um félagsstarfið sem er tvisvar í viku. Um er að ræða 15% starf. Laun samkvæmt kjarasamningum VerkVest. Umsóknarfrestur er til 20. desember.

Umsóknir ásamt fylgigögnum sendist Soffíu Guðmundsdóttur, félagsmálastjóra, Hafnarbraut 25, 510 Hólmavík.

Upplýsingar eru veittar í síma 451-3510 og fyrirspurnir og umsóknir má einnig senda á felagsmalastjori@strandabyggd.is

Barmahlíð