Fara í efni

Sönn sakamálasaga úr Breiðafirði

07.09.2026
Fréttir

Bókaútgáfan Sæmundur hefur gefið út bókina Morð í Múlasveit, Saga Jóns rúgkúts eftir Reyni Elías Einarsson frá Fremri-Gufudal. Bókin varpar ljósi á eitt myrkasta og dularfyllsta sakamál sem um getur í okkar heimabyggð, en sagan teygir anga sína um Múlasveit, Gufudalssveit, Flatey og víðar um Vestfirði á 19. öld.

Árið 1834 finnst Einar Gíslason látinn í fjárhúsinu í Skálmardal. Grunur beinist fljótt að húsbónda hans, Jóni rúgkúti. Málið verður að martröð fyrir yfirvöld þegar í ljós koma hrottalegir áverkar á líkinu og járnnaglar reknir í iljar hins látna.

 

Bókin er söguleg skáldsaga sem byggir nákvæmlega á skjalfestum heimildum sem er miðlað á lifandi hátt. Auk þess að gera morðmálinu skil þá fá lesendur innsýn í líf þorparans Jóns rúgkúts, en einnig mannlíf og staðhætti við Breiðafjörð Þetta er bók sem enginn ætti að láta framhjá sér fara!

 

Nálgast má bókina hjá höfundi eða hjá Jóhönnu Einarsdóttur í Fremri-Gufudal.