Sólmyrkvagleraugu fyrir íbúa Reykhólahrepps
24.07.2026
Fréttir
Brynjólfur Smárason og Guðmundur Ólafsson, mynd stolið af fb. síðu Guðmundar.
Reykhólahreppur hefur fengið afhent sólmyrkvagleraugu vegna almyrkvans á sólu sem verður sýnilegur á Íslandi 12. ágúst 2026.
Íbúar Reykhólahrepps geta sótt gleraugun sér að kostnaðarlausu í Bakka-Búðina á opnunartíma.
Miðað er við að hægt verði að sækja fjölda gleraugna eftir fjölda íbúa á hverju lögheimili.
Mikilvægt er að nota viðurkennd sólmyrkvagleraugu við áhorf á sólina. Venjuleg sólgleraugu veita ekki fullnægjandi vörn og geta ekki verndað augu gegn skaðlegri geislun. Því er brýnt að þeir sem hyggjast fylgjast með myrkvanum noti einungis sérstök sólmyrkvagleraugu sem ætluð eru til slíkra nota.
Almyrkvinn 12. ágúst 2026 er einstakur viðburður og er búist við miklum fjölda gesta á Vestfjörðum af því tilefni.