Söfnunarsvæði og ábendingar vegna sólmyrkvans í dag 12. ágúst
12.08.2026
Fréttir
Á Reykhólum verður söfnunarsvæði í Hvanngarðabrekku (Kvennó). Aðgengi að salernum þar eru við nýju tjaldsvæðin við gamla kaupfélagið og einnig í anddyri íþróttahúss. Bílastæði söfnunarsvæðis eru við Reykhólaskóla, íþróttahús og við Reykhólakirkju.
Hættulegt er að horfa beint í sólina meðan á deildarmyrkva stendur án sólmyrkvagleraugna en sólmyrkvagleraugu er óhætt að taka niður meðan á almyrkva stendur. Sjá nánar um öryggi augna á upplýsingasíðu sólmyrkva 2026
Reykhólahreppur gefur öllum íbúum sólmyrkvagleraugu, þau má sækja í Bakka-búðina.
Deildarmyrkvi á Reykhólum hefst kl. 16:44 og lýkur kl. 18:45.
Almyrkvi varir í 39 sekúndur og hefst kl. 17:45:55.