Fara í efni

Skólastjóri Reykhólaskóla

22.04.2026
Fréttir

Reykhólahreppur auglýsir stöðu skólastjóra Reykhólaskóla lausa til umsóknar. Skólinn er samrekinn leik-, grunn- og tónlistarskóli undir einu þaki sem viðkomandi er ætlað að leiða. Í skólanum eru innan við 30 nemendur á grunnskólaaldri og 12 nemendur á leikskólaaldri. Reykhólar er sveitarfélag með um 270 íbúa og þar af býr um helmingur þeirra á þéttbýlinu á Reykhólum. Á Reykhólum er að finna margvíslega þjónustu.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Að starfa skv. lögum og reglugerð um grunn- og leikskóla
  • Að veita skólanum faglega forystu á sviði kennslu og þróunar í skólastarfi
  • Að leiða samstarf nemenda, starfsmanna, heimila og skólasamfélagsins í heild
  • Að stýra og bera ábyrgð á rekstri skólans og daglegri starfsemi

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Leyfi til að nota starfsheitið kennari
  • Kennslureynsla í grunnskóla er skilyrði
  • Framhaldsmenntun á sviði stjórnunar og uppeldis- og menntunarfræða er kostur
  • Reynsla af störfum á sviði stjórnunar, rekstrar og þróunarstarfi er kostur
  • Hæfni í mannlegum samskiptum
  • Faglegur metnaður, hugmyndaauðgi, skipulagshæfni og leiðtogahæfileikar
  • Sjálfstæði í vinnubrögðum og frumkvæði
  • Hreint sakavottorð

Leitað er að einstaklingi sem hefur skýra framtíðarsýn í skólamálum, er skapandi og metnaðarfullur. Staðan er laus frá 1. ágúst 2026. Launakjör eru samkvæmt samningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands.

Umsókn skal fylgja greinargott yfirlit um nám og störf (ferilskrá), leyfisbréf til kennslu, kynningarbréf og meðmæli. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Fólk af öllum kynjum er hvatt til að sækja um.

Upplýsingar um starfið veitir Hrefna Thoroddsen, ráðgjafi hjá Attentus í gegnum netfangið hrefna@attentus.is