Fara í efni

Skimun fyrir krabbameini í Búðardal. Athugið vel hvert skal hringja til að panta tíma

23.08.2023
Fréttir

Skimun fyrir krabbameini í Búðardal

Athugið vel hvert skal hringja til að panta tíma

Skimun fyrir brjóstakrabbameini verður 4.-5. september   Sjá nánar á síðu Landsspítala

 Tímapantanir eru í síma 513 6700 milli kl. 8:30 og 12:00 alla virka daga. Einnig er hægt að senda tölvupóst á krabbameinsskimun@heilsugaeslan.is

Konur sem hafa fengið boðsbréf eru hvattar til að panta tíma í skimun fyrir brjóstakrabbameini

Núna er einkennalausum konum á aldrinum 40 - 69 ára boðin skimun fyrir brjóstakrabbameini á tveggja ára fresti og konum á aldrinum 70-74 ára á þriggja ára fresti.

Haustið 2023 verður skimað fyrir brjóstakrabbameini á þessum stöðum hjá Heilbrigðisstofnun Vesturlands (HVE) – með fyrirvara um breytingar:

Búðardalur - 4. og 5. september

Hólmavík - 6. september

Stykkishólmur - 25. til 26. September

Ólafsvík / Grundarfjörður - 2. til 4. október

Skimun fyrir leghálskrabbameini verður 5. september

Tímapantanir eru í síma 432 1450

Konur sem hafa fengið boðsbréf eru hvattar til að panta tíma í skimun fyrir leghálskrabbameini.

Vekjum athygli á að barnshafandi konur geta einnig óskað eftir viðtali vegna meðgöngu og fæðingar, hjá Helgu Hreiðarsdóttur ljósmóður sem annast sýnatökur vegna leghálskrabbameins.