Sérstakur húsnæðisstuðningur til foreldra eða forsjáraðila 15-17 ára barna
25.08.2026
Fréttir
Félagsþjónusta Stranda og Reykhólahrepps minnir á að foreldrar/forsjáraðilar 15-17 ára barna sem eru í framhaldsskólum fjarri lögheimili eiga rétt á sérstökum húsnæðisstuðningi.
Sjá reglur hér:
Reglur félagsþjónustu Stranda og Reykhólahrepps um sérstakan húsnæðisstuðning
Umsóknir berist til Hlífar Hrólfsdóttur á tölvupóstfangið felagsmalastjori@strandabyggd.is
Fylla þarf út umsóknareyðublaðið Microsoft Word - Umsókn um sérstakan húsnæðisstuðning 15-17 ára og senda ásamt afriti af húsaleigusamningi og staðfestingu á skólavist.