Fara í efni

Sérhæfð velferðarþjónusta á Vestfjörðum samþykkt

10.10.2023
Fréttir

Sveitarfélögin á Vestfjörðum hafa gert með sér samning um sérhæfða velferðarþjónustu á svæðinu og var tækifærið nýtt á Fjórðungsþingi Vestfirðinga til undirritunar.

Ísafjarðarbær er leiðandi sveitarfélag samkvæmt samningnum og gefa hin sveitarfélögin honum vald til ákvarðanatöku í málaflokknum. Almenn velferðarþjónusta verður þó áfram rekin hjá sveitarfélögunum og skiptist niður á fjögur velferðarsvæði. Á norðursvæðinu verða þau tvö, annars vegar Ísafjarðarbær og Súðavík og hins vegar Bolungarvíkurkaupstaður, Á Ströndum mynda Árneshreppur, Kaldrananeshreppur, Reykhólahreppur og Strandabyggð sameiginlega velferðarþjónustu og á suðursvæðinu eru það Vesturbyggð og Tálknafjarðarhreppur.

Nánar á vef Vestfjarðastofu