Fara í efni

Seinni brúin yfir Djúpafjörð boðin út í apríl

26.03.2026
Fréttir
Mynd, Vegagerðin
Mynd, Vegagerðin

Vegagerðin hyggst í næsta mánuði bjóða út smíði 210 metra langrar brúar yfir Djúpafjörð á sunnanverðum Vestfjörðum. Hún verður ein svipmesta brú landsins en jafnframt lokaáfanginn á Vestfjarðavegi (60) um Gufudalssveit.

Hún verður í sama stíl og brýrnar yfir Mjóafjörð í Ísafjarðardjúpi og Eldvatn í Skaftártungu en þær eru 160 metra og 78 metra langar. Djúpafjarðarbrúin verður því mun stærri en hinar og mun ekki síður en þær setja mikinn svip á umhverfi sitt.

Samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni í dag er áformað að brúarsmíðin verði boðin út í apríl, það er í næsta mánuði, eftir páska.

Verklok eru ekki endanlega ákveðin en líklegt að þau verði annaðhvort í lok árs 2027 eða í byrjun árs 2028.

Af visir. is