Samstarf fyrirtækja á Reykhólum
Starfsfólk Norðursalts fór í heimsókn til Þörungaverksmiðjunnar og kynnti sér öryggismál verksmiðjunnar. Vel var tekið á móti starfsfólkinu og fékk það bæði fyrirlestur um öryggismál og vettvangsferð um Þörungaverksmiðjuna sem Vésteinn Tryggvason og Hlynur Stefánsson sáu um fyrir hönd verksmiðjunnar.
Öryggismál eru forgangsmál hjá Þörungaverksmiðjunni og er fyrirtækið því góð fyrirmynd fyrir þá sem vilja kynna sér málefnið.
Á myndinni eru frá vinstri Quentin Monnier, Ingvar Åbege, Aron Hill og Ingibjörg Erlingsdóttir starfsfólk Norðursalts, tilbúin í vettvangsferð hjá Þörungaverksmiðjunni. Á myndina vantar Atla Hilmarsson vélstjóra Norðursalts.
Þörungaverksmiðjan og Norðursalt eru bæði staðsett í Karlsey við Reykhóla og hafa fyrirtækin tekið sig óformlega saman um samvinnu sín á milli og að styrkja hvort annað í málefnum er varða bæði fyrirtækin.