Fara í efni

Sameiningarmál, álit Reykhólahrepps og umsögn innviðaráðuneytis

27.12.2023
Fréttir
Ýmsar sameiningarhugmyndir hafa komið fram á þessu svæði. Kort af vef LMÍ
Ýmsar sameiningarhugmyndir hafa komið fram á þessu svæði. Kort af vef LMÍ

Við breytingar á sveitarstjórnarlögum sem samþykktar voru á Alþingi 13. júní 2021 var sett inn ákvæði um að stefnt skyldi að því að lágmarksíbúafjöldi sveitarfélags væri 1000 manns. Sveitarfélög með færri en 250 íbúa voru einnig skylduð til að hefja sameiningarviðræður við önnur sveitarfélög, eða vinna álit um stöðu sveitarfélagsins, getu þess til að sinna lögbundnum verkefnum og um þau tækifæri sem felast í mögulegum kostum sameiningar sveitarfélagsins við annað eða önnur sveitarfélög.

Reykhólahreppur skilaði í vor, til innviðaráðuneytis, áliti um stöðu sveitarfélagsins og greinargerð um stöðu sameiningarviðræðna við nágrannasveitarfélögin.

Í haust barst umsögn innviðaráðuneytisins og niðurstaða þess er að sveitarfélagið er hvatt til að huga að þeim tækifærum sem kunna að felast í sameiningu við önnur sveitarfélög.

Sveitarstjórn hefur tekið á dagskrá til tveggja umræðna málefni sameiningar og er bókun um málið við síðari umræðu á fundi 13. desember:

„Sveitarstjórn Reykhólahrepps telur forsendur til þess að ganga til formlegra sameiningaviðræðna við önnur sveitarfélög ekki sterkar, vegna verkefnastöðu sveitarfélagsins og vinnu við hringrásarsamfélagið. Samþykkt samhljóða.“

Þar sem er talað um verkefnastöðu er átt við vinnu við Græna iðngarða, hringrásarsamfélagið á Reykhólum og uppbyggingu húsnæðis í tengslum við það.

Álit Reykhólahrepps og umsögn innviðaráðuneytis eru aðgengileg undir stjórnsýsla – Umsagnir og álit.