Fara í efni

Reykhólaskóli auglýsir eftir kennara í 50% starf á unglingastigi

31.05.2025
Fréttir

Reykhólaskóli auglýsir eftir kennara í 50% starf á unglingastigi

Laus störf: Reykhólaskóli skólaárið 2025-2026

  • Grunnskólakennari


Menntunar- og hæfniskröfur kennara

  • Kennaramenntun og leyfisbréf til kennslu.
  • Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með börnum.
  • Lipurð og hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Frumkvæði, sjálfstæði og sveigjanleiki í vinnubrögðum.
  • Reglusemi og samviskusemi.
  • Góð íslenskukunnátta.

Fríðindi í starfi

  • Metnaðarfullt starfsumhverfi
  • Flutningstyrkur
  • Árskort í Grettislaug Reykhólum

Við leitum að kennara sem hafa brennandi áhuga á uppeldi og menntun barna. Skólinn er vel búin helstu námsgögnum og tækjum, staðsettur í fallegu og náttúruríku umhverfi þar sem tækifæri gefast til að hafa áhrif á skólastarfið og efla m.a. útikennslu og tengjast umhverfinu á skapandi hátt.

Leiðarljós leikskólans eru: Vilji er vegur og gildi skólastefnu Reykhólahrepps eru vellíðan, samvinna, kjarkur.

Reykhólahreppur skartar friðsælu og stórkostlegu umhverfi, þar sem fjölbreytt tækifæri eru á að stunda útvist. Góð þjónusta er við barnafjölskyldur, m.a. frítt frístunda- og tómstundastarf og hafa öll börn aðgang að ókeypis 6 tíma leikskóladvöl á dag.

Á Reykhólum er verið að byggja þrjú ný raðhús. Möguleiki á að fá leigt húsnæði á hagkvæmu verði. Jafnlangt í akstri til Ísafjarðar, Reykjavíkur og í Skagafjörðinn.

Skólinn er samrekinn leik-, grunn- og tónlistarskóli undir einu þaki. Í skólanum eru um 50 nemendur. Reykhólar er sveitarfélag með um 240 íbúa og þar af býr um helmingur þeirra í þéttbýlinu á Reykhólum.

Bent er á að samkvæmt lögum þurfa umsækjendur að samþykkja heimild til öflunar upplýsinga úr sakaskrá. Launakjör eru samkvæmt samningum Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands.

Umsækjandi má hvorki hafa hlotið refsidóm vegna brota á ákvæðum XXII. kafla almennra hegningarlaga, nr. 19/1940 né hafa hlotið refsidóm fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni, nr. 65/1974, á síðastliðnum fimm árum.

Ráðið er í stöðurnar frá 1. ágúst 2025.

Umsóknarfrestur er til og með 15. júní 2025.

Nánari upplýsingar veitir Anna Margrét Tómasdóttir skólastjóri Reykhólaskóla á netfangið skolastjori@reykholar.is eða í síma 434-7731. Ferilskrá og umsókn sendist á skólastjóra. www.reykholaskoli.is