Fara í efni

Rekstur verslunar og veitingasölu á Reykhólum auglýstur

01.09.2023
Fréttir

Reykhólahreppur auglýsir eftir rekstraraðila til að reka verslun og veitingastað að Hellisbraut 72 á Reykhólum.

Húsnæðið er að Hellisbraut 72 og er skráð 179,3 m2 að stærð og hefur verið endurgert að utan og var veitingastaður byggður við húsnæðið 2020. Húsnæðinu fylgir búnaður til rekstrar m.a. kassakerfi, hillur og kælar. Húsnæðið er laust 1. desember, eða fyrr eftir samkomulagi.

Í húsnæðinu hefur verið rekin verslun og veitingastaður.

Reykhólahreppur óskar eftir því að umsóknum fylgi;

  • Lýsing á því hvernig umsækjandi hyggst nýta húsið, m.a. til að efla mannlíf í Reykhólahreppi.
  • Rekstraráætlun og staðfesting á getu umsækjanda til að standa undir rekstrinum.

Reykhólahreppur áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum.

Umsóknarfrestur er til og með 20. september 2023.

Umsóknum skal skila rafrænt á netfangið sveitarstjori@reykholar.is

Nánari upplýsingar og skoðun á eigninni veitir sveitarstjóri á netfanginu sveitarstjori@reykholar.is eða í síma 430-3200.