Fara í efni

Plokkvika í Reykhólahreppi

27.04.2026
Fréttir

Þar sem bændur og búalið eru mjög upptekin á þessum tíma árs, var ákveðið í Umhverfis- og náttúruverndarnefnd að hafa plokkviku í stað umhverfisdagsins, þar sem íbúar hreppsins eru hvattir til að fara út og plokka á ýmsum stöðum. 

Reykhólaskóli reið á vaðið og hélt umhverfisdag þar sem nemendur fóru um þorpið og plokkuðu.

Það er í valdi hvers og eins hvernig þátttöku er hagað.

Endilega merkið myndir á samfélagsmiðlum með myllumerkinu #plokkíReykhólahreppi2026#