Öskudagshátíð á Reykhólum.
18.02.2026
Fréttir
mynd, Embla Bachmann
Allskonar furðuverur voru á ferð um Reykhóla í dag. Þær bönkuðu uppá hjá fyrirtækjum og heimilum og brustu í söng þegar komið var til dyra. Að launum fengu verurnar, sem voru auðvitað börn í felubúningum, góðgæti af ýmsu tagi.
Samkoma var í íþróttahúsinu þar sem kötturinn (ósýnilegur að þessu sinni) var sleginn úr tunnunni, allir fengu nammi og vöffluhlaðborð.
