Öryggissvæðið við borholuna hjá Görðum stækkað
08.07.2026
Fréttir
Vegna þess að mikið heitt vatn streymir úr borholunni hjá Görðum hefur öryggissvæðið verið stækkað. Kúatjörn er innan þess svæðis sem girt er af, mikið af sjóðandi heitu vatni rennur í hana og hækkar hiti í henni ört.
Fólk er vinsamlega áminnt um að gæta varúðar og virða lokanir á vinnusvæðinu og sérstaklega að hafa gætur á börnum meðan viðgerð á borholunni stendur yfir.